MALEY
MALEY er stofnað árið 2025 af æskuvinkonum sem ólust upp með sterkt ímyndunarafl og stóra drauma. Á fullorðinsaldri eru báðar komnar með háskólamenntun í þeim greinum sem þær voru sterkastar í sem börn.
FRÍ HEIMSENDING Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU, Engin lágmarks upphæð
FRÍ SENDING í DROPPBOX utan Höfuðborgarsvæðisins ef verslað er fyrir 10.000kr eða meira
SUMARFLÍKURNAR ERU KOMNAR FRÁ ÍTALÍU
FRÍ HEIMSENDING Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU, Engin lágmarksupphæð
&
FRÍ SENDING Í DROPPBOX MEÐ ÖLLUM PÖNTUNUM YFIR 10.000KR
GILDIR AF DECO DREAM SILKI LÍNUNNI
Afsláttur reiknast af við checkout
Vörumerki frá Ítalíu


Við viljum að þú sért ánægð með kaupin þín. Ef eitthvað passar ekki eða hugur þinn breytist, gerum við skilin eins einföld og mögulegt er.
STÍLLINN
Stíllinn einkennist af hreinum línum, flæðandi formum og yfirveguðum einfaldleika. Hver flík er hönnuð með áherslu á jafnvægi milli mýktar og skýrleika - þar sem silkið fær að njóta sín í hreyfingu og ljósi. Útkoman er tímaleysi, hljóðlátur lúxus sem byggir á gæðum, nákvæmni og fágun.
EFNIN
Við leggjum áherslu á að vinna eingöngu með eins náttúruleg efni og völ er á, með því sameinum við umhverfislega ábyrgð og raunverulegan lúxus. Með því að velja hráefni sem eiga uppruna sinn í náttúrunni tryggjum við að þau geti einnig skilað sér aftur til hennar, með lágmarks áhrifum á umhverfið og kostur er.
Í okkar fyrstu vörulínu má finna 100% hreint Mulberry silki.
Við leggjum áherslu á að vinna með aðilum sem eru sérhæfðir og með helstu vottanir. Framleiðslan á fatnaðinum og silkinu fer fram í sömu borg og eru því kolefnissporin eins fá og við mögulega gátum.
Við veljum gæði umfram magn.
Silhouettur
Hönnunin byggir á jafnvægi milli afslappaðrar mýktar og fágaðrar elegans. Silhouetturnar eru hreinar, tímalausar og áreynslulausar, þar sem einfaldleikinn fær að njóta sín og lúxusinn birtist í kyrrlátri nálgun.
Í hverju smáatriði, frá sniði til frágangs, endurspeglast skuldbinding okkar við gæði, nákvæmni og þægindi. Markmiðið er að skapa flíkur sem falla fallega að líkamanum og standast tímans tönn, bæði í notkun og útliti.
Ef þú vilt vita meira um silki eða muninn á Silki vs. Satín þá skaltu skoða bloggið okkar með því að smella á takkann hér fyrir neðan.
CREDIT LIST
Fashion video
Shot by; Steve Wall, Dancer; Kristín Marja Ómarsdóttir, Creative director/editor; Sóley Jóhannsdóttir, Music; Hyperlandia by Deadmau5 & Foster the people
Photographs
Photographer; Berglind Jóhannsdóttir, Model; Ingunn Sigurpálsdóttir, Stylist; Guðrún Tara Birnudóttir
MALEY er stofnað árið 2025 af æskuvinkonum sem ólust upp með sterkt ímyndunarafl og stóra drauma. Á fullorðinsaldri eru báðar komnar með háskólamenntun í þeim greinum sem þær voru sterkastar í sem börn.