Um okkur

MALEY er stofnað af æskuvinkonum sem ólust upp með sterkt ímyndunarafl og stóra drauma.  Á fullorðinsaldri eru báðar komnar með háskólamenntun í þeim greinum sem þær voru sterkastar í sem börn. 

Sóley lærð í fatahönnun og Rósa með viðskiptafræðimenntun með áherslu á fjármál.

Eftir árlega vinkonustund kom upp hugmynd þar sem vinkonurnar freistuðust til þess að snúa bökum saman og skapa eitthvað fyrir alvöru og úr því varð MALEY. 

 

Fyrsta línan er hönnuð með það að markmiði að endurskilgreina hvíld sem athöfn sjálfsumhyggju og valdeflingar, byggt á þeirri trú að sönn fegurð hefjist með vellíðan. Við hönnum lúxus fatnað úr náttúrulegum, niðurbrjótanlegum og húðvænum efnum sem veita hreina upplifun í hverri hreyfingu.
Hver flík er hönnuð af ásetningi, er loftgóð, lífræn og framleidd til að styðja við þægindi, húðheilsu og daglegar athafnir hæglætis og endurnæringar.
Sjálfbærni er ekki tískustraumur fyrir okkur, hún er gildið okkar. 

Við vinnum einungis með ábyrgum framleiðsluaðilum og veljum umhverfisvæn efni, með textíl sem eru mild bæði við húð og umhverfi.

Við trúum því að það að líða vel í eigin líkama sé sannasta form lúxus.