Upplýsingar og ákvæði um Silki og meðferð

Ákvæði um silki og aðrar viðkvæmar náttúrulegar trefjar.

Silki, eðli efnis og meðferð

Flíkur úr silki eru framleiddar úr náttúrulegum trefjum sem hafa sérstakt eðli og krefjast varfærinnar meðferðar. Silki er létt, viðkvæmt efni sem getur brugðist við núningi, raka, hita og efnum með öðrum hætti en sterkari trefjar. 

Kaupandi er upplýstur um að:

Silki getur krumpast við notkun og geymslu, yfirborð silki getur með tímanum misst hluta af gljáa sínum við eðlilega notkun, nudd (t.d. frá töskum, skartgripum eða beltum) getur valdið sliti á efni. Slík einkenni teljast eðlilegir eiginleikar efnisins og ekki galli í skilningi neytendakaupalaga.

Þvottur og meðferð

Kaupandi ber ábyrgð á að fylgja þeim þvotta- og meðferðarleiðbeiningum sem fylgja flíkinni. Röng meðferð, þar á meðal en ekki takmarkað við: þvott gegn leiðbeiningum, notkun sterkra hreinsiefna, þurrkun í þurrkara, straujað við of mikinn hita, getur valdið varanlegum skemmdum á flíkinni og fellur slík notkun utan ábyrgðar.

Galli og ábyrgð

Flík telst gölluð samkvæmt lögum um neytendakaup ef hún: er ekki í samræmi við lýsingu, efnisinnihald eða gæði sem kaupandi mátti með réttu vænta, eða sýnir framleiðslu- eða frágangsgalla við eðlilega notkun og rétta meðferð. Eðlilegt slit, einkenni efnisins sjálfs eða skemmdir sem rekja má til rangrar meðferðar teljast ekki galli. Ábyrgð samkvæmt neytendakaupalögum gildir í 2 ár frá afhendingu.

Kvartanir

Kaupandi er hvattur til að hafa samband við seljanda eins fljótt og auðið er komi upp grunur um galla og leggja fram myndir og lýsingu á notkun og meðferð flíkarinnar. Seljandi metur hverja kvörtun fyrir sig í samræmi við lög og eðli vörunnar.

Til baka á bloggið