Hvað er Silki?
Silki er ein af elstu og verðmætustu náttúrulegu trefjum heims. Það er unnið úr púpu silkiormsins og hefur verið ræktað í yfir 5.000 ár. Á fornöld var silki talið jafn verðmætt og gull og varð grunnurinn að hinum sögufræga Silkivegi, sem tengdi saman heimsálfur og menningarheima.
Silki er próteintrefjar og bygging þess líkist að hluta til byggingu mannshárs og húðar. Þessi náttúrulega samsetning gefur silki einstaka mýkt, styrk og öndunareiginleika. Ólíkt gerviefnum aðlagast silki hitastigi líkamans, kælir í hlýju umhverfi og einangrar í svalara lofti. Því hentar það sérstaklega vel í náttfatnað og flíkur sem liggja beint að húðinni.
Við notum 100% mulberry silki, sem telst vera hæsti gæðaflokkur silkis. Mulberry silki er unnið úr silkiormum sem nærast eingöngu á mórberjalaufum( Mulberry leaf), sem skilar lengri, sléttari og jafnari trefjum. Þykktin veitir fullkomið jafnvægi milli fallegs falls og endingar, efnið er nægilega þétt til að endast, en um leið létt og flæðandi á líkamanum.
Silki er jafnframt náttúrulega ofnæmisvænt og milt fyrir viðkvæma húð. Slétt yfirborð þess dregur úr núningi og hjálpar til við að viðhalda náttúrulegum raka húðarinnar. Í aldaraðir hefur silki ekki aðeins verið tengt við lúxus, heldur vellíðan.
Með réttri umhirðu er silki endingargott og sjálfbært náttúruefni. Það er niðurbrjótanlegt, andar vel og eldist fallega. Fyrir okkur er silki ekki aðeins efni heldur upplifun.

Silki vs. satín - Hver er munurinn?
Margir halda að silki og satín séu það sama, en það er ekki rétt.
Silki eru trefjar en satín er vefnaðaraðferð.
Silki vísar að uppruna efnisins sjálfs, sem er náttúrulegar próteintrefjar. Satín (eða satin) lýsir hins vegar ákveðinni vefnaðartækni sem skapar slétt og glansandi yfirborð. Satín getur því verið unnið úr ýmsum efnum, pólýester, næloni, viskósi eða jafnvel silki.
Þegar talað er um “satín” án frekari skýringa er það oftast gerviefni með glansandi áferð. Slík efni geta litið út fyrir að vera svipuð silki við fyrstu sýn, en þau hafa ekki sömu eiginleika:
Gervi-satín andar síður.
Það aðlagast ekki hitastigi líkamans.
Það getur safnað stöðurafmagni.
Það hefur ekki sömu endingargæði né náttúrulega mýkt.
Silki getur verið ofið í satín-vefnað, og þá kallast það silkisatín, en þá er um að ræða raunverulegt silki með satín-áferð, ekki gerviefni.
Fyrir okkur skiptir þessi munur máli. Við vinnum með 100% silki. Áferðin er náttúruleg, glansinn djúpur en ekki plastkenndur, og snertingin við húðina mjúk og lifandi.